Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
416Hjálmar ÁrnasonBakaði tvo brauð og færði samstarfsfólk hjá Keili með reyktum laxi. Fór svo í að teikna upp með Gunnhildi samstarfskonu draum u alþjóðlega handboltamiðstöð á Ásbrú.
449Anna María SigurðardóttirEr búin að vera að undirbúa fund með Rúnari sem sér um orkutæknifræðina hjá Keili, þar er allta að gerast. Ætla að drífa þann fund af núna
467Inga Sveinbjörg ÁsmundsdóttirEr að fara yfir umsóknir í Háskólabrú - fjarnám Keilis. Undirbý símainntökuviðtal við umsækjanda sem býr í Noregi.
491Gunnhildur Erla VilbergsdóttirSendi út fjöldapóst á yfir 2.500 þjálfara um magnað námskeið, ÍAK íþróttaþjálfun hjá Keili, sem hefst í janúar. Lee Taft "the speed guy" kennir við námskeiðið. Eintóm hamingja og dýnamík og kraftur og og og og...!!
493Sævar Ingi BorgarssonÉg kláraði að ganga frá fyrirlestri sem er búinn að vera í bígerð hjá heilsuskóla Keilis
531Hlíf BöðvarsdóttirFór yfir 80 verkefni í Félagsfræði og sendi einkunnir og athugasemdir á nemendur.
539Soffía Waag ÁrnadóttirBúin að undirbúa fund fyrir kennara Háskólabrúar Keilis. Nú fer að líða að prófum og að ýmsu að huga. Allt að verða klárt, þetta er stemmningstími og þarf að hlúa vel að nemendum og kennurum. Sannkölluð uppskeruhátíð!


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.