Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
37María KristjánsdóttirHellti upp á og drakk kaffi, skipulagði tvo fundi og boðaði á þá, gekk frá staðgreiðslu á fjárhagsaðstoð, fékk upplýsingar um atvinnuleitendur í Hveragerði, hljóp 7 km.
41Aldís HafsteinsdóttirSkrifaði grein um rusl, flokkun þess og nýtingu eftir að það fer frá íbúum bæjarins.
57Þórdís MagnúsdóttirFór í sundleikfimi. Bókaði ófærða reikninga.
69Helga KristjánsdóttirFundaði með fjármálasjóra Sveitarfélagsins Ölfus um áætlun á milliviðskipti. Reiknaði út afslætti á leikskólum bæjarins.
80Björg HilmisdóttirTók til í eldhúsi bæjarskrifstofunnar í forföllum samstarfskonu. Tók á móti vinnuskýrslum frá nokkrum forstöðumönnum og sendi skilagreinar fyrir launatengd gjöld.
91Hulda SigurðardóttirByrjaði vinnudaginn á að taka á móti faðmlögum & kossum samstarfsmanna sem samfögnuðu mér með trúlofun okkar kærastans. Svaraði slatta af símtölum, tók við skilaboðum til starfsmanna og setti tilkynningu á heimasíðu bæjarins.
93Elfa Dögg ÞórðardóttirFór til Reykjavíkur að sækja perur í jólaskreytingar bæjarins.
95Árni SvavarssonBúinn að lagfæra jólaskreytingar og fara niður í skólphreinsistöð.
96Reginn BjarniBúinn að fara með lurka upp í Grunnskóla til að búa til jólasveina úr.
168Jóhanna Margrét HjartardóttirKláraði að koma frá mér fréttabréfi og viðburðadagatali Hveragerðisbæjar í prentsmiðju í morgun. Bæjarbúar fá fréttabréfið inn um bréfalúguna næstkomandi fimmtudag. Sjón er sögu ríkari.
181Heiða GuðnadóttirEr búina að skrá reikninga og greiða fara í pósthúsið og bankann. Fer í prjónaklúbb í kvöld þegar ég er búin að gefa fjölskyldunni kvöldmat.
186Leó Vilberg BaldurssonByrjaði á því að fara í skólann að læra síðan í leikfimi. Er núna að fara til Reykjavíkur í Intersport. þegar ég kem heim fer ég í Boot camp.
202Guðrún HafsteinsdóttirSkipulagði æfingabúðir fyrir sunddeild Hamars í Hveragerði.
207Anton TómassonStuðlaði að og auglýsti göngugreiningu fyrir hóp áhugafólks um skokk hjá Skokkhóp Hamars.
215Anna Kristín KjartansdóttirGekk frá pöntunum við útlönd. Gekk frá skilagreinum vegna opinberra gjalda. Kláraði handout fyrir ræðunámskeið hjá Powertalk deildinni Jóru, sem ég sé um í kvöld.
219ValdimarHef verið í tiltekt á skrifborðinu mínu í dag. Afar tímabært verk.
223Margrét S TraustadóttirInnheimta var mitt aðal verkefni í dag
226Hólmfríður SkaftadóttirUppfæra og prenta út reikninga, savara í síma
238Jón Ingi JónssonFór að skoða nýja verslun í Kópavoginum. Kostur! flott búð hjá Jóni Gerald
246Dagný Lísa DavíðsdóttirFór í skólann og í sund. Eftir skóla fór ég í píanótíma og æfði mig fyrir tónleika sem verða í Hveragerðiskirkju annað kvöld.
255Unnur ÞormóðsdóttirBúin að skreyta allt húsið, jólin komin í Hveragerði
257Halldór ÁsgeirssonLagði flísar í þvottahúsið
258Eyþór H ÓlafssonSkrifaði grein gegn Bitruvirkjun
259Ragnhildur HjartardóttirByrjaði á ermi
284Hafsteinn DavíðssonFór í skólann og á sundæfingu
286Davíð J.DavíðssonHjálpa dótturinni að selja salernisp. og eldhúsrúllur. Lesa kvöldsögu fyrir yngsta soninn.
380Sigurbjörg HafsteinsdVann í Olweusarverkefninu með hóp af nemendum til að koma í veg fyrir einelti í skólanum okkar.
480Elín Sesselja GuðmundsdóttirSótti pappíra niður á skrifstofu og fór yfir reikninga.
484Ásta GunnlaugsdóttirAðstoðaði nokkra einstaklinga á fætur. Búa um þónokkur rúm, lagaði til í fataskáp. Gert að sárum og hlegið með vinnufélögum
489Guðrún Lilja JóhannsdóttirBaðaði 5 einstaklinga og gekk frá þvotti.
605Hulda GíslaTók til í þvottahúsinu
611Gísli Páll PálssonGekk með hundinn í morgunsárið. Vann á skrifstofunni til hádegis. Fundir kl. 13 og 16. Körfuboltaæfing um kvöldið.
766Birna Sif AtladóttirLagði fram jólavinnuskýrslu. Skipulagði jólabingó fyrir börn starfsmanna.
793Hulda BergrósÞar sem að allir eru prjónandi þessa dagana, hvað sem helst, datt mér í hug að gera svolítið grín að okkur og lét verða að því að prjóna G- streng úr lopa
800Soffía ValdimarsdóttirÞessa dagana sit ég við að skrifa lokaverkefni mitt í Þjóðfræði við Háskóla Íslands. Viðfangsefni mitt er íslenska lopapeysan og vinsældir hennar undanfarin ár.
802Bryndís SigurðardóttirBúin að gefa út annað tölublað af Hverafugli, vinna mikið í síðasta verkefninu í Háskólanum og er að stemma af bókhald.
813Ingþór Óli ThorlaciusKlára að klæða vesturhliðina á gesthúsinu og setja upp jólaljósin heima í kvöld ef veður leyfir.
814Jónheiður Anna ThorlaciusÉg ætla að fara á fótboltaæfingu og vera með Dagný vinkonu minni í dag. Svo bara horfa á sjónvarpið með fjölskydunni minni í kvöld eða eitthvað svoleiðis.
815Þórir ThorlaciusBara chilla heima hjá mér með Stebba og Elvari örugglega.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.