Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
428Heimir KarlssonGekk úr skugga um að Kristján Möller samgönguráðherra, muni ekki láta sitt eftir liggja og ætlar að framkvæma athöfn og láta teygjuna ganga.
598Ívar GuðmundssonFór beint í að hringja og taka viðtal við hana Kristínu út af styrktartónleikum Ellu Dísar sem fram fara á fimmtudagskvöldið á Spot í Kópavogi. Fór í Laugar til að sparka í rassinn á Simma Og Jóa.
796Anna Lilja PálsdóttirÓvenju margt klárað af verkefnalistanum í dag. Sendi líka póst á vini og kunningja um Handverksölu Ljóssins 29. nóvember n.k. (Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra). Hluti af undirbúning jólanna að fara í vöfflukaffi til þeirra.
837Anna Kristín ÁsbjörnsdóttirSíðasta yfirferð textana áður en bókin mín Álfar og huldufólk úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar fer í prentun. Nú er að krossa fingur og vona að engar stafsetningavillur hafi náð að slægjast með. Sér í endann á löngu en einstaklega skemmtilegu verkefni.
932Jón Gunnar AðilsLas nokkra kafla fyrir gamlan vin í mjög svo fræðandi og á köflum firnaskemmtilegu bókarhandriti.
937Anna S. GuðfinnsdóttirLegg mitt á vogarskálina við að koma sannleikanum um hrunið í hendur almennings. Skipulagði tíma með ömmu um helgina.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.