Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
640GassiÍ dag kyssti ég konuna mína bless og fór með bílinn hennar í viðgerð. Svo var ég jákvæður við alla í kringum mig....
654Ólafur Örn NielsenHjálpaði góðum vini í gegnum erfið verkefni svo nú getur hann horft fram á veginn!
744Rós MagnúsdóttirGladdi dóttur mína í gærkvöldi með heitum eplum fyrir svefninn, það gladdi hana mjög.
748Ásdís Jóna MarteinsdóttirFór aðra ferð í leikskólann í morgun svo sonurinn gæti verið með leikfang að heiman á dótadegi í leikskólanum.
750Gréta Björg JakobsdóttirTók til í eldhúsinu í vinnunni þó það væri ekki minn "eldhúsdagur" og henti blöðum og pappakassarusli sem var fyrir samstarfsmönnum mínum.
752Anna Heiða Sigrúnardóttir Skar niður kræsingar og gerði fínt fyrir fund okkar starfsmanna í Eddunni svo allir fengi nú eitthvað gott í gogginn.
764Vilborg JónsdóttirFór og skilaði til Rauða Krossins fullt af barnafötum sem að ekki nýtast lengur á mínu heimili. Er að skipuleggja árlegt "þakkargjörðarboð" sem haldið verður í kvöld með æskuvinum.... hvað er betra en góðir vinir.
767Jóhanna ÁsmundsdóttirBíllinn í skoðun. Fór með hann í smur og þaðan í skoðun, fæ þar með ekki sekt fyrir að vera of sein og lendi ekki í biðröð með öllum hinum sem ætla að græja þetta síðustu daga mánaðarins


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.