Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
112Torfi GeirmundssonÉg er búinn að fá Kristján Jóhannesson fyrrverandi rakarameistara til að halda námskeið í að brýna rakhnífa upp á gamla móðinn. Kristján er fæddur 1931 og starfaði sem rakari í Reykjavík fyrir 40 árum síðan. Kristján kann vel handtökin á því að brýna rakhnífa og er tilbúinn til að kenna þessa tækni sem sennilega er að verða útdauð hér á landi . Að brýna rakhnífa var aldrei kennt í Iðnskólum hér og í dag eru ekki margir nú lifandi rakarameistarar sem kunna að brýna hníf svo vel sé. Í framhaldinu verður síðan gefin út bæklingur og DVD diskur.Gengið verður frá uaglýsingum um námskeiðið í þessari viku.
180Valdimar TómassonEr að dreifa Bókatíðindum JPV og ætla síðan að lesa yfir allar ný útkomnar ljóðabækur fyrir þátt á Útvarp Sögu á miðvikudag, klukkan 15 til 16. Þar kem ég til með að kynna þær bestu að mínu mati.
808Jóhann KristjánssonFór í vinnuna og kláraði hljóðvinnslu á ansi skemmtilegum þætti sem hefur göngu sína á sunnudagsmorgun.
938Þ. Markús ÞórhallssonKom loksins í verk með góðra manna hjálp, að endurlífga gamlan og góðan félagsskap. Nú verður teygjan látin ganga áfram.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.