Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
333Eyrún Ingibjörg SigþórsdóttirKláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
337Sif KarlsdóttirKláraði að merkja og færa í bókhaldið
365Lára EyjólfsdóttirKnúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
375Pálína Kristín HermannsdóttirTók til í hillum hjá mér í geymslunni og gerði pantanir fyrir vinnustaðinn sem höfðu beðið.Tók til á skrifborðinu líka.
456Kristjana AndrésdóttirFærði aldraðri móður minni sem dvelur á sjúkrastofnun ný föt þar sem þau gömlu voru orðin lúin og fullnýtt.
494Trausti Þór SverrissonSetti saman myndasyrpur sem lýsa mörgum ánægjulegum stundum í Tálknafjarðarskóla það sem af er skólaári.
517Sigurður S. JónssonLét nemedur 4.-6. bekkjar samlesa einþáttunga, sem verða fluttir á fullveldisdaginn 1. des.
530Trostan AgnarssonHlakkaði til vorsins og fór þá að hugsa um tilgang lífsins og hvatti aðra til þess að gera slíkt hið sama.
689Ragnar Anthony GambrellLas Litlu bókina um stress og ákvað að gifta mig ekki og eignast ekki börn.
933Jóhanna Guðnadóttirtók alla kerta afgangana mína sem ég er búin að safna að mér síðan í fyrra og bjó til nokkur kerti. Nýju kertin gaf ég svo vinum og vandamönnum í tilefni að aðventunni
939Sigurlaug GuðmundsdóttirByrjaði á ritgerð um HRÓS. Held áfram að vinna við dagatal Tálknafjarðarskóla ásamt nokkrum vörsku meyjum, sem foreldrafélagið gefur út.
944Helga Birna BerthelsenBakaði fyrir "surprise" afmæli vinkonu dóttur minnar.
945Bjarnveig GuðbrandsdóttirÉg hélt upp á "surprise"afmæli fyrir vinkonu dóttur minnar.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.