| Nr. framkvæmdar |
Nafn framkvæmdaraðila |
Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni |
| 574 | Oddný S. Þórðardóttir | Sat vinnuþing Vatnavina Vestfjarða, ákaflega fróðleg erindi. Fór í yoga og hugleiðslu í heita pottinum á Laugarhóli í skafrenningi, leiðbeinadi Anna Dóra á Klængshóli í Skíðadal, frábær upplifun. | | 575 | Oddný S. Þórðardóttir | Vann öll ósýnilegu verkin sem bíða svo þolinmóð. Uppvaskið, elda matinn og setja í þvottavélina. | | 576 | Úlfar Eyjólfsson | Mokaði skítinn úr einu fjárhúsi og setti niður grindurnar aftur | | 578 | Úlfar Eyjólfsson |
Lyfti grindunum í næsta húsi, til að geta haldið áfram í skítnum ( með hjálp góðra manna). Kveikti upp í reykkofanum | | 717 | Jón Guðbjörn Guðjónsson | Á mánudaginn 16-11-09 fór ég í mína hefðbundnu póstferð,sækja póstinn til Norðurfjarðar og fara með hann út á Gjögurflugvöll og bíða eftir flugvélinni og taka síðan við póstinum sem kom að sunnan og dreyfa honum á bæjina frá Kjörvogi til Krossnes.
Siðan að senda veðurskeyti til Veðurstofunnar sem ég geri 5 sinnum á sólarhring.
Hugsa um kvöldmat fyrir okkur bræður hér í Litlu-Ávík.
Venjulegur dagur byrjar kl 06:00 á morgnana með að senda veðurskeyti,leggja sig aftur í smá tíma til að verða átta,þá að fá sér morgunhressingu,mæla snjódýpt ef það þarf veðurskeyti sent kl 09:00 aftur.Smá pása eða unnið við fréttavefinn Litlihjalli.is,síðan að hugsa um hádegismat senda 12.00 veðurskeyti,þá hádegismatur,vaska upp og ganga frá,síðan kannski að leggja sig í smá tíma.Saga viðarrusl í eldinn,sem fer í spýtnaketilinn eða annað unnið útivið.Þá komið að nónkaffi,síðan unnið í tölvunni fram undir 18:00 veðurskeyti.Hugsa um kvöldmat taka upp mat fyrir morgundaginn,þá er komin matur og vaska upp og ganga frá.Horft á sjónvarpsfréttir og annað sjóvarpsefni ef manni langar.Síðasta veðurskeyti sent kl 21:00 og þá horft á sjónvarp eða verið í tölvunni,farið í rúmið um á milli kl 22:30 til kl23:00,þá gripið í bók spennusögu eða eitthvað alvarlegra.Svona er þetta nokkurn vegin í stórum dráttum. | | 723 | Oddný S. Þórðardóttir | Fór á fætur um kl:7 til að kveðja heimilisfólið sem var að fara til Hólmavíkur á Tónlist fyrir alla, að því loknu hljóp ég fram í eldhús til að byrja dæla í mig koffeini svo dagurinn gæti nú hafist fyrir alvöru. Svo var það nú þetta hefðbunda að setja í vél,taka niður þvott, lesa blöðin og spjalla við góðan vin. Að því loknu fór ég að gera póstinn kláran og á mína vakt í kaupfélagið því það var flogið í dag og sveitungar vildu fá sína mjólk og ekkert mehe með það. Þegar matar stússið var búið hljóp ég fram og henti mér upp í sófa þar sem ég ætlaði að liggja næsta klukkutímann til að fá að heyra einu sinni enn fumvarp um I save...spennandi | | 724 | Edda Hafsteinsdóttir | Þessi saga hér á undan er mín en ekki Oddnýjar, sýnir bara hvað mig hlakkaði til að henda mér í sófann ;) | | 801 | Jón Guðbjörn Guðjónsson | Setti í tvær þvottavélar í dag.Teknar myndir af miklum sjógangi um hádegið og sett inná fréttasíðuna www.litlihjalli.it.is og settur góður skíringatexti með. |
|
| Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar. |
| Sigurður Óli Ólafsson |
Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja. |
| Skúli Skúlason |
Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV. |
| Jóhanna Pálsdóttir |
Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu |
| Örn Þórðarson |
Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana. |
| Gunnhildur Sveinsdóttir |
Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært. |
| Lára Eyjólfsdóttir |
Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann. |
| Ásdís Ólafsdóttir |
Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:) |
| Elías Jónatansson |
Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar. |
| Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir |
Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum. |
| Hrefna hallgrímsdóttir |
Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :) |
| Þuríður Helga Kristjánsdóttir |
Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010. |
|