Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
577Kristján MöllerKom í framkvæmd áætlun um að jafna stöðu kynjanna í sveitastjórnum á fundi með forsætis- og fjármálaráðherra. Markmiðið er að auka þátttöku kvenna í sveitastjórnum og næstu skerf eru að fá alla stjórnmálaflokkana með í slaginn.
579Ingvar SverrissonLas ógrynni að skjölum í dag til að undirbúa mig fyrir komandi átök í pólitíkinni. Hitti líka litla bróður í hádeginu og við lögðum línurnar fyrir næstu skref í verkefninu Algjör sveppur- dagur í lífi stráks sem við setjum á svið fljótlega.
582Jóhannes TómassonVann áfram hugmyndir með aðstoðarmanni ráðherra um hvernig má ýta undir að rafbílar verði gerðir að raunhæfum valkosti á Íslandi. Orkan er fyrir hendi, nokkurt úrval af bílum til innflutnings er fyrir hendi (og áhugasamir innflytjendur) en vandinn er hvernig farið verður með gjöld á slíka bíla sem eru umhverfisvænni kostur en bílar knúnir hefðbundnum orkugjöfum. Fór svo í nauðsynlega karlaleikfimi.
625Elín Rósa FinnbogadóttirSendi póst á vinnufélaga og upplýsti þá um gang mála í ákveðnu verkefni og óskaði þeim um leið góðs vinnudags.
708Svana Margrét DavíðsdóttirKeypti íslenska hönnun af mjög svo hæfileikaríkri íslenskri listakonu. Kemur til með að verða mikill gleðigjafi og mun sjást á erlendri grund!
710Valgerður GuðmundsdóttirSendi heillaóskatölvupóst á vinnufélaga sem liggur heima í svínaflensu.
719Marta Birna BaldursdóttirGerði verkefnisáætlun um framkvæmd umhverfisstefnu ráðuneytisins
747Jóhannes Finnur HalldórssonHélt fyrirlestur á málstofu reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga
749Jóhannes Finnur HalldórssonFundaði með Eyrbyggjum, sem eru hollvinasamtök Grundfirðinga, en gefin er hefur verið út bók nánast á hverju ári og er nú komið að 10 bók á næsta ári og voru lögð drög að efnistökum. Þá er stefnt að hitting brottfluttra á veitingastað í eigu Grundfirðinga


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.