Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
24Helga G HalldórsdóttirHurðin á bílskottinu mínu hefur lengi verið biluð. Búin að panta tíma hjá viðgerðamanni,mikið fegin :-)
38Gunnhildur SveinsdóttirLoksins búin að panta tíma fyrir dekkjaskipti, úr sumar í vetrardekk;)
121Jón Brynjar Birgisson, verkefnisstjóri hjá Rauða krossi ÍslandsKom tetrastöð í stjórnstöðinni okkar í lag.
125Atli Viðar ThorstensenFór og hljóp í morgun og teygði á. Kláraði að senda nokkur bréf og fór og kíkti á sófa í Góða hirðinum í hádeginu.
349GesturFór með reiðhjól í viðgerð (hefur staðið til lengi).
559Ingibjörg Eggertsdóttirkom því loksins í verk að heimsækja kírópraktorinn sinn.
612Bryndís Rut JónsdóttirKenndi skyndihjálparnámskeið.
730Aðalsteinn HrafnkelssonÁn athafna væru fáir viðburðir, án viðburða væri ekkert. Mikilvægir viðburðir eru afleiðing mannlegra athafna. Athafnir geta bætt og breytt, og því set ég í uppþvottavélina núna.
763Kristín María GuðjónsdóttirFór í heimsókn til lítilar vinkonu minnar sem er veik og gaf henni DVD myndina Mjallhvít og dvergarnir 7. Það er nefnilega svo gott að kúra í fanginu hjá mömmu og horfa á skemmtilega teiknimynd.
929Hallbjörn GuðjónssonNáði loksins að taka til á þessum stóra lager mínum. Mánuði fyrir jól.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.