| Nr. framkvæmdar |
Nafn framkvæmdaraðila |
Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni |
| 260 | Stefán Þór Helgason | Heimsótti ömmu og tók að mér að sækja fyrir hana hjálpartæki. |
| 287 | Stefán Þór Helgason | Framlengdi frest til að skila inn myndböndum í Snilldarlausnir - hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna fram til miðnættis nk. fimmtudag vegna fjölda áskorana. Nú er síðasti sén til að taka þátt! |
| 332 | Helgi Halldórsson | Setti fúgur á milli flísa sem ég hafði límt í gær. |
| 412 | Þórunn Jónasdóttir | Ég sat fund, skrapp svo i Grafarvoginn í klippingu og verslaði í kvöldmatinn á leiðinni heim. |
| 413 | Helga Ísleifsdóttir | Ég gaf naggrísunum og kanínunum mínum. |
| 414 | Hildur Ísleifsdóttir | Ég hjálpaði til við að elda kvöldmatinn og lagði á borðið. |
| 415 | Sigrún Ísleifsdóttir | Ég horfði á DVD mynd og vann í tölvunni. |
| 590 | Sólveig Stefánsdóttir | Skilaði af mér flík, sem ég hafði hjá mér til viðgerða, og tók til mín fleirri flíkur. Bauð síðan móður minni út að borða í kvöldmat:) |
| 599 | María M Sigurðardóttir | Lauk við lopapeysu á barnabarnið |
| 755 | Gréta Friðrika Guttormsdóttir | Litaði hárið á systir minni og tókst það ákaflega vel. |
| 756 | Helga María Guttormsdóttir | Litaði hárið á systir minni og var búin að ætla mér það lengi, skellti mér í það í gærkvöldi. |
| 759 | Guðrún Erla Baldvinsdóttir | Lagði á morgunverðarborð fyrir 60 manns í morgun. |
| 787 | Hjördís Ýr | Samdi próf í sögu og fór yfir ensku próf.
|
| 797 | Karl Jóhann Jónsson | tók leirverkefni nemenda minna út úr ofninum í skólanum og límdi saman 3 þeirra sem voru brotin. Fór síðan heim og gekk nokkra kílómetra með hundinn og síðan vann ég að myndskreytingu sem ég á eftir að klára. |
| 857 | Rannveig Ásgeirsdóttir, framkv.stj.Ritara ehf | Hélt áfram þróun nýs verkefnis Ritara og fundaði með hugsanlegum viðskiptavin. |
| 858 | Rannveig Ásgeirsdóttir, framkv.stj. Ritara ehf | Fór á fjölskyldudag vinnustaðarins í Sporthúsinu með stelpunum mínum: Skotbolti, spinning, crossfit og hot yoga ! |