Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
6Björk PálsdóttirGerir miðrými Nýheima klárt fyrir athafnaviku :)
9Ari ÞorsteinssonTók til í Stefnumótunarmöppu í tölvunni minni
10Albert EymundssonUndirbýr þriðja tölublað Eystrahorns
11Bryndís Hólmarsdles yfir sögur og ljóð vegna Dags íslenskrar tungu
14Sigurður Örn HannessonEr að skanna og skrá kvenfélagsmyndir
16vífill karlssonPússa gler og henda rusli
18Guðný SvavarsdóttirFitja upp 40 lykkjur á kærleikstrefilinn.
21Guðmundur GunnarssonSetti upp mindmap fyrir verkefni vikunnar. Er nú tilbúinn að takast á við skemmtilega viku að fullu afli.
23Ragnhildur JónsdóttirBúin að taka ráðgjafarviðtöl fyrir Vinnumálastofnun
26Björn MargeirssonFlug frá Reykjavík til Hafnar vegna námskeiðs Matís hjá SÞ.
27Sigurjón ArasonFlug frá Rvík til Hafnar + bíll í hleðslu
30Haukur Ingi EinarssonVinna að uppbyggingu gervigrasvallar, funda um fjárhagsáætlun, funda um fjallaverkefni, samþykkja reikninga o.fl.... drekka kaffi
36Eygló IllugadóttirÉg er í meistaranámi við Háskóla Íslands í fjarnámi og hef aðstöðu í Nýheimum til að sinna náminu.
40Magnús J. MagnússonEr að vinna að ritgerð í félagsfræði
45Sigríður kristinsdóttirEr á fullu að koma nýjum vörum upp
51Hafdís EiríksdóttirNú er ég að undirbúa útför skrá það sem þarf að panta og svo framvegis.Nóg að gera.Undirbúningur jólanna og margt fleira.
105Pálmi GuðmundssonTaka upp jólavarning og setja upp aðstöðu fyrir jólabókamarkað.
117Jón Birkir FinnssonJá það er bara þokkalegt að gera farinn að baka fyrir jólin smákökur og laufabrauð er frekar upptekinn núna í augnablikinu og frekar seinn að pikka á lyklaborðið þannig að ég segi þetta gott að sinni.Kveðja Bakarinn.
119Guðrún Ester ÞorsteinsdóttirAfgreiða Jón bakara.
123Sigríður BirgisdóttirÉg vinn í banka.
124Guðrún Ósk ÓskarsdóttirBankastarfsmaður
133S.Guðbjörg GarðarsdóttirSvaraði símanum. Afgreiddi mál/beiðni fyrir viðkomandi úr símanum.
139Ástríður SveinbjörnsdóttirGjaldkeri er að greiða openbergjöld
163Harpa HögnadóttirÍ kaffitíma.
172Hrafnhildur Magnúsdóttirsvaraði í símann
194Svava Kr. GuðmundsdóttirVar að enda við að ganga frá tjónamáli og hef verið að stússast í ýmskum pappírum. Nú ætla ég að fara og fá mér kaffi.
201Anna HalldórsdóttirHef nýlokið samtölum við nokkra viðskiptavini og þarf í framhaldinu að ljúka úrvinnslu þeirra mála.
209Anna María RíkharðsdóttirLauk við taka upp úr ferðatökunni eftir ferðalag helgarinnar.
304Elínborg ÓlafsdóttirKlára að ganga frá verkefnum sem liggja fyrir hjá mér
305Elínborg ÓlafsdóttirKláraði verkefni sem ég var að vinna að
306Elínborg ÓlafsdóttirKláraði verkefni sem ég var að vinna að
308Elínborg ÓlafsdóttirKláraði verkefni sem ég var að vinna að
309Elínborg ÓlafsdóttirKláraði verkefni sem ég var að vinna að
319Ásdís ÓlafsdóttirPrjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
321Kristjan S GuðnasonVinn í forvörnum fíkniefna með öðrum góðum mönnum.
391Ólafia HansdEr að klára bútasaumsrúmteppi fyrir barnabarn sem á að vera jólagjöf. Fór í langa gönguferð í gær eftir erfiðan vinnudag.
392Magnús J. MagnússonVinna í leikhúsi við uppsetningu
490Ragna PétursdóttirÞrífa röntgen herbergið, gæðaprófa tækin og skrá inn hjá Raferninum. Setti mér markmið og byrjaði fast 3-4 sinnum í viku í sporthöllinni.
503hildur Sólveig SigurðardóttirEg sprautaði 10 einstaklinga með mótefni gegn svínaflensu. Það tókst bærilega og engin fór að gráta. Ekki einu sinni 2 fallegir eins og þriggja ára fallegir strákar sem tóku þessu eins og sannar hetjur. Pabbi þeirra var ívið stressaðri.
504Ágústa BaldursdóttirKláraði ritgerðarsmíðina sem legið hafði fyrir síðustu dagana. Lét verða af því að hringja í gamla góða æskuvinkonu, en það hafði lengi staðið til.
505Guðrún Júlía JónsdóttirUndirbúa fundarboð fyrir Heilbrigðis- og öldrunarráðsfund, sem haldinn verður 26. nóvember. Einnig er ég að undirbúa mig fyrir vinnufund bæjarstjórnar sem verður kl:17 í dag. Klára lopapeysu sem ég er að prjóna á dóttur mína.
570Guðlaug ÚlfarsdóttirUndirbúa vettvangsferð í Geitafell í fyrramálið.
571Guðlaug ÚlfarsdóttirLauk við kynningu á M.Ed verkefninu mínu til flutnings.
672Matthildur ÁsmundardóttirUndirbjó kynningu á fjölskyldustefnu sveitarfélagsins á Hornafirði fyrir borgarafund sem er fyrirhuguðaður 3.des.
707Hólmfríður Bryndís ÞrúðmarsdóttirÉg mætti í Sporthöllina á Hornafirði kl.6:00 í morgun og púlaði í góðan klukkutíma með morgunþrekshópnum mínum sem ég þjálfa þrisvar sinnum í viku.
720Hulda ValdísBúin að vera dugleg að mæta í ræktina alla vikuna og sinna fjölskyldunni vel.
779Anna María KristjánsdóttirSat kennarafund, á eftir sat ég á kennarastofunni og fékk mér kaffibolla með góðu spjalli við vinnufélagana.
781Birna SkarphéðinsdóttirHélt afmælisveislu fyrir manninn minn,bjó til mikið af kæfu, sinnti starfi mínu sem veðurathugunnarmaður og prjónaði jólagjafir. Fylli hjarta mitt af kærleika og huga minn af jákvæðni sem ég deili til allra sem á vegi mínum verða.
782Sigurður Mar HalldórssonÍ morgun gekk ég frá myndatöku til framköllunar og skrifaði á disk. Hnýtti svo á mig hálstau, því við mætum með bindi á föstudögum í FAS. Kom svo við á pósthúsinu á leið í skólann og settu geisladiskinn í póst. Fór yfir eitt nemendaverkefni fyrir hádegið og snæddi svo dýrindis fiskisúpu hjá Chiharu í kaffiteríu Nýheima. Þar var líka Ari Þorsteinsson að kynna fyrirbærið Slow Food en hann fór á dögunum við þriðja mann til Ítalíu til að kynna sér þetta fyrirbæri. Sat svo kennarafund eftir hádegi og í kjölfarið þarf ég að vinna ákveðna vinnu áður en ég kemst í helgarfrí. Ég hyggst ljúka því af heima seinna í dag. Kvöldið fer væntanlega í að líta á nokkrar greinar því það nálgast ískyggilega deddlæn á stórt verkefni í skólanum hjá mér, en ég er í kennsluréttindanámi í Háskólanum á Akureyri. Á morgun fer ég svo sem viðhengi með Kvennakór Hornafjarðar til Eskifjarðar. Eiginkonan er í kórnum og þær munu syngja á tónleikum á Eskifirði. Ég hlakka til að heyra jólaprógrammið þeirra og það verður vafalaust fjörí rútunni á bakaleiðinni.
783BryndísÉg dansaði fyrir framan gluggann á fiskabúrinu til þess að létta lund Önnu Maríu
792Stefanía L. ÞórðardóttirHjólaði á bókasafnið og verlaði í matinn í Nettó, fór heim að taka til
798sonjavar einstaklega skipulögð í vinnuni í dag. alldrey þessu vant skoppaðist svo í búðina
809Hulda Björk Svansdóttirbúðarferð og líkamsrækt


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.