| Nr. framkvæmdar |
Nafn framkvæmdaraðila |
Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni |
| 214 | Þórhildur Birgisdóttir | Byrjaði Athafnavikuna með því að mæta á skemmtilega viðburði dagsins. |
| 285 | ElvaÓlafsdóttir | Stórhreingerning á bókaskápum og síðan fór ég á 2 viðburði athafnavikunnar. |
| 288 | Anna Björk Birgisdóttir | Málaði svefnherbergið seinnipartinn og hóf málningarvinnu á baðherberginu. Löngu þarft verk :-) |
| 289 | Steingrímur Dagur Stefánsson | Tók öll leikföngin af stofugólfinu, setti bílana á sinn stað og púsluspilin í rétta kassa. |
| 290 | Birgir Steinn Stefánsson | Ræktaði líkama og sál:-) Æfði mig í trommuleik eftir að hafa tekið vel á því í ræktinni. |
| 291 | Karen Birgisdóttir | Lærði í allan dag og hugsaði um kærastann þess á milli. |
| 378 | Silja Rún Gunnlaugsdóttir | Tók til í þvottahúsinu ( sem var lengi búið að fresta) og heimsótti gamlar skólasystur .. sem var löngu tímabært . |
| 389 | Ragnheiður Jakobsdóttir | Kláraði öll leiðinda mál sem eru búin að safnast upp í "bakkanum" mínu á síðustu mánuðum. |
| 419 | Ólafur Birgisson | Málaði megnið af stofunni, lakkaði útidyrahurðina (að innan) og gerði mér ferð í foreldrahús í lok kvölds til tölvuviðgerðar. |
| 487 | Hrafnhildur E. Karlsdóttir | Vann upp "gömul" og löngu tímabær verkefni og kom á skipulagi sem endist alla veganna vikuna. |
| 509 | Katrín Björg Ríkarðsdóttir | Spjallaði við 2 nemendur úr félagsfræðiáfanga í VMA um mannréttindi og lýðræði. Aðstoðaði son minn við að setja sér skipulag við lærdóminn fram yfir prófatíð. |
| 526 | Harpa Lind Guðbrandsdóttir | Synti 2 km |
| 528 | Anna Steinunn Jónsdóttir | Fór í 20. vikna sónar með dóttur minni og svo í IKEA.
Það sem ég ætla að gera núna er að knúsa 2 konur sem vinna með mér. |
| 631 | Herdís A. Jónsdóttir | Skipulagði námskeið fyrir fólk í atvinnuleit. Átti uppbyggilegt samtal við vinkonu um gildi þess að vera jákvæður og gefast ekki upp í lífsins ölduróti. |
| 658 | Snjólaug Aðalsteinsdóttir | Undirbjó jólafund hjá skátunum og félagsfund hjá Baldursbrá, fór á sýninguna á héraðsskjalasafninu um kvenfélög. |
| 691 | Pétur Björgvin Þorsteinsson | Ákvað að mála herbergi yngsta sonarins, tæmdi herbergið, þreif veggina, málaði þá (loftið líka) og ætli ég parkettleggi það ekki bara líka. En fyrst er að finna einhvern annan til að áframsenda teygjuna á! |
| 751 | Lóa Hrönn Harðardóttir | Hélt próftækninámskeið fyrir nemendur HR og stofnaði frænkukór - Svalborgarkórinn. |
| 780 | Heimir Haraldsson | Fór á fyrirlesturinn "Heilsa og líðan þeirra sem misst hafa vinnu í kjölfar efnahagsþrenginga" í hádeginu í dag. |
| 791 | Gréta Matthíasdóttir | Stóð fyrir fatasöfnun í nafni FRÆ-sins og Stúdentafélags HR, til handa Fjölskylduhálp Íslands. Markmið okkar í HR er að safna 3500 flíkum.
Sótti auk þess tvo atburði í þessari viku og hafði virkilega gaman af!
Dag hvern reyni ég að sá gleði og hamingju og njóta lífsins! |
| 794 | Marie-Teresa Vander Sande | Today I have been working with my husband John preparing for the Town Hall Meeting on Monday and the Executive Committee meeting next Tuesday. |