Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
82Halla TómasdóttirVar einn mauranna á bak við Þjóðfund 2009. Bjó til kynningu um niðurstöður Þjóðfundar til að vera með á uppbyggilegu hádegi hjá Auði Capital í dag.
146Bjarney HarðardóttirSetti inn frétt á innravef Íslandsbanka um athafnavikuna.
177Birna EinarsdóttirKynnti athafnavikuna á framkvæmdastjórafundi bankans.
390Birkir Hólm GuðnasonKeypti 1000 eintök af bókinni "Dagbók Rokkstjörnu" eftir Atla Thoroddsen fyrrverandi Flugstjóra Icelandair er lést fyrr á þessu ári eftir margra ára baráttu við krabbamein. Ætla að gefa öllum starfsmönnum Icelandair eintak af bókinni til minningar um góðan mann og til að minna okkur á hversu dýrmætt lífið er.
698Ómar SvavarssonÉg hef boðið æðstu stjórnendum Vodafone Global til Íslands, til að kynna fyrir þeim raunverulega stöðu mála og þeirri áræðni sem býr í þjóðinni. Sá fundur hefur verið settur og verður 1.desember.
715Jón Garðar ÖgmundssonEr að ráða 10 nýja starfsmenn og hef þegar sett það í gang í dag. 15 ný störf ætla ég að skapa á næstu 30 dögum hjá mínum samstarfsaðilum og hef þegar hafist handa. Gangi ykkur öllum vel. Grande grande
761Jón Ingi BjörnssonHélt símafund með starfsmönnum Trackwell í Ameríku þar sem farið var yfir innleiðingaáætlun hjá nýjum viðskiptavin OXY.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.