Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
728Svafa GrönfeldtKynnti samkeppni sem heitir FRÆ ÁRSINS 2010. Markmiðið er að styðja við frumstig nýsköpunar og að gefa frumkvöðlum tækifæri til að breyta hugmynd eða frumgerð í viðskiptaáætlun og sprotafyrirtæki.
729Alda SigurðardóttirÍ tilefni af athafnavikunni fór ég á afar áhugaverðan fund í HR um hvernig kvenfrumkvöðlar ná árangri.
731Sunna MagnúsdóttirFlutti stutt erindi á Frumkvöðla- og nýsköpunarvinnustofu, sem ætluð var stjórnum nemendafélaga framhaldsskólanna á Alþjóðlegu Athafnavikunni í Háskólanum í Reykjavík.
732Kristján Valgeir ÞórarinssonTók fataskápinn í gegn og gaf föt í fatasöfnun Fræsins og Stúdentafélags HR á Alþjóðlegum Athafnadögum.
733Nanna Kristín TryggvadóttirVann í umsóknum fyrir framhaldsnám og fór svo og kynnti mér framtíðartæknina þegar ég skoðaði rafmagnsbíl sem er lokaverkefni rafmagns-, véla- og orkutæknifræðinema við HR, mjög áhugavert og flott framtak hjá strákunum.
734Jóhanna Margrét GísladóttirTók viðtal við konrektor HR, John Vander Sande og konu hans Marie fyrir Háskólablað HR, yndisleg hjón sem eru eru að gera frábæra hluti fyrir skólann. Hélt opnar myndatökur fyrir viðmælendur Háskólablaðs HR, 37 manns, mikið fjör.
760Stefán Einar Stefánssonstýrði málþingi í HR.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.