| Nr. framkvæmdar |
Nafn framkvæmdaraðila |
Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni |
| 227 | Skúli Skúlason | Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV. |
| 403 | Guðrún Helgadóttir | Ég er að koma út síðustu auglýsingunum um Athafnakaffi á Hólum í Hjaltadal á morgun 18.11. kl. 16-18. Það óformlegt spjall yfir kaffi og vöfflum um hvaða frumkvöðlastarf, þjónustu eða athafnir fólk vill sjá á Hólum, hvað Háskólinn á Hólum getur gert til að styðja sitt fólk í frumkvöðlastarfi um allt land og síðast en ekki síst: Hver og hver og vill og verður - að láta hlutina gerast! |
| 405 | Guðrún Helgadóttir | og nú geri ég það sem ég gleymdi áðan - auglýsa Athafnakaffið hér: http://www2.holar.is/index.php?option=com_content&view=article&id=405:altjoeleg-athafnavika-spjallfundur-a-holum&catid=130:frettir&Itemid=159 |
| 406 | Helgi Thorarensen | Hélt kennarafund um skipulag náms í fiskeldi þar sem verið var að ræða hvernig námið þjónar atvinnugreininni best. |
| 468 | Guðmundur Björn Eyþórsson | Er á kafi í tölum októbermánaðar og rekstraráætlunnar 2010 |
| 470 | Guðrún Þóra Gunnarsdóttir | Skrifaði löngu tímabært bréf til vina í útlöndum og velti fyrir mér hugmyndum fyrir námskeið um ímyndir norðursins. |
| 471 | Linda Kristín Friðjónsdóttir | Er á kafi að stemma af og færa bókhald Háskólans á Hólum. |
| 474 | Claudia Lobindzus | Er að undirbúa kennsluna fyrir morgundaginn. Ætlar að hafa hana töluvert öðruvísi en venjulega: núna eiga nemendurnir að kenna mér! |
| 483 | Aldís Axelsdóttir | Er að vinna að ræstingaplani fyrir húsnæði Háskólans á Hólum,er að fara með teikningar og áætlun til matsaðila og fá álit. |
| 495 | Sólrún Harðardóttir | Fór á kirkjuloft í Hóladómkirkju, fann ekki hvar átti að kveikja en fálmaði mig áfram í myrkrinu og fann loks það sem ég leitaði að, bókina um Bauka Jón. Bókin verður vinningur í bingói. Ferðin á kirkjuloftið hefur staðið í mér en teygjan skaut mér af stað! |
| 656 | Ingibjörg Sigurðardóttir lektor | Undirbjó flutning á nýju skrifstofuna mína, endurskoðaði námskeiðslýsingar fyrir kennsluskrá Háskólans á Hólum fyrir skólaárið 2010-2011 og vann að skipulagningu kennslu á vorönn 2010. |
| 657 | Ingibjörg Sigurðardóttir lektor | Tókst að koma tvíburunum snemma í svefn í kvöld eftir bað og kvöldmat. Líklega eru smávægileg veikindi ekki alslæm eftir allt saman - þeir sem eru slappir fara snemma að sofa. Eftir hefðbundin heimilisstörf gerði ég tvennt sem hefur staðið til í nokkurn tíma. Ég lauk við landnýtingaráætlun fyrir bróður minn og saumaði vettlinga úr svörtu mokkaskinni, dropóttu (ólituðu) lambsskinni og roði. Var fyrir vikið bara ánægð með athafnir dagsins. |
| 746 | Hlín C. Mainka | Ætlar að pussa og lakka skrifborð dóttir mína um helgina. |
| 774 | Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir | Fór á rúmlega klukkustundar þrekæfingu í Þreksport á Sauðárkróki í gær. |
| 784 | Sigurbjörg B. Ólafsdóttir | Funda um starfaskipurit Hólaskóla eftir að hafa skipulagt og framkvæmt vinnufund og gleði með starfmönnum. Vinna úr gögnum vinnufundar. Elda villibráð fyrir félaga mína í matarklúbbnum þar sem stefnt er að því að ræða stofnun slow food deildar í Skagafirði. |