Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
39Laufey JóhannsdóttirNánari greining í fjárhagsáætluninni. Aflaði nánari upplýsinga varðand greiðslur sveitarfélaga til tónlistarskóla, ræddi við Pál hjá SSH.
56Ingibjörg B. ErlingsdóttirSöng Hvítir mávar fyrir þá sem vildu hlusta á skrifstofunni.
228Kristjana Helga ÓlafsdóttirFór og hlustaði á 2.5 árs drenginn minn syngja með öðrum leikskólabörnum á foreldraskemmtun í tilefni að degi íslenskrar tungu.
334Skúli LýðssonTók mér frí frá vinnu og málaði þvottahúsið heima. Konan himinlifandi.
384Guðrún MagnúsdóttirÉg tók að mér að vera í skemmtinefnd vinnustaðar míns og er að ganga frá undirbúningi á jólahlaðborði starfsfólks sveitarinnar.
432Þórdís ÞórisdóttirKláraði að prjóna jólagjöf
513Árdís HauksdóttirKláraði að baka jólasmákökurnar mínar.
514Sigurður SigurjónssonÁkvað að flísaleggja neðri hæðina, sótti prufur til Reykjavíkur sem var stórframkvæmd. Næsta verkefni er að velja úr prufunum, versla og leggja svo flísarnar.
554Inga Bryndís IngvarsdóttirFór með tveimur elstu hópunum á leikskólanum í fjöruferð við Súlunes í frábæru veðri og ýmislegt brallað og fundum ýmsa forvitnilega hluti.
560Hilda ÁrnadóttirKláraði loksins að mála eldhúsið, forstofuna og ganginn eftir tveggja mánaða bið og faðmaði manninn minn.
670Anna Berglind EinarsdóttirKom til vinnu eftir veikindi og gladdi samstarfsfólk mitt með köku.
740Einar JónssonÁtti frí á miðvikudag, þreif húsið, hengdi upp þvott, skellti mér 9 holur golf, skrapp til rakarans, braut saman þvott, kláraði seinni 9 holurnar, fór svo og sótti barnabörnin og svo þegar allir komu heim, héldu þau að ég hafi legið yfir sjónvarpinu allan daginn og ekkert gert.
941Helga Stefanía Magnúsdóttirþreif eldhúsið, æfi jólasöngva allt hvað af tekur fyrir hátíðir í minni sveit, hjálpaði dóttur minni að klára lopapeysu, kenndi fyrir samkennara minn alla vikuna, legg síðustu hönd á sjálfsmatsskýrslu,eldaði oní góða vini.
942Helga HarðardóttirByrjaði aftur að æfa á morgnana, fyrir vinnu. Mætti kl. 06:15 í ræktina morgunn og nú verður ekki aftur snúið. Komin í gang!
947Elín Guðrún TómasdóttirNýtti helgina 27-29 nóvember í að heimsækja vini og kunningja, eitthvað sem ég hef ætlað að gera lengi. Skellti líka upp jólaseríum og jólagardínum og þreif aðeins ;)
948Dóra Líndal HjartardóttirLjúka skýrslugerð sem eru atvinnutengdar fyrir 11. des 2009
949Birgitta GuðnadóttirTaka þátt1.des hátiðarhöldum með nemendum Heiðarskóla í kvöld


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.