Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
331Elías JónatanssonNáði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
350Elín JónsdóttirFór með íslenskt sælgæti og harðfisk í póst til dótturinnar sem er í próflestri í NTNU í Noregi.
354Daðey S EinarsdóttirBúin að núllstilla rekstrarreikning 2008.
388Arnar Smári RagnarssonVar að ganga frá kaupum á rúmum 4 tonnum af þorski af Fiskmarkaði Vestfjarða. Fiskurinn verður unnin í Fiskverkuninni Vík á morgun.
394Ragna MagnúsdóttirLagði lokahönd á skipulagningu Kærleiksdaga í Bolungarvik sem verða þann 20. og 21. nóvember.
396Elsa JónsdóttirVann að uppkasti af verkefni í markaðsfræði við háskólan á Akureyri.
817Steinunn Diljá Högnadóttirskipti sumardekkjunum út fyrir vetrardekkin undir bílnum :)
819Sunna Reyr SigurjónsdóttirGerði við tvennar gallabuxur og eina skyrtu. Fór með mat til hænsnanna, þreif vatnsdallinn þeirra og fyllti hann.
822Viktoria Kr. GuðbjartsdóttirFór á ræðukeppni framhaldskólanna Morfís. Þar tókust á Menntaskólinn á Ísafirði og Menntaskólinn Hraðbraut. Málefnið var á að gera vestmannaeyjar að fanga-nýlendu? MÍ var meðmælandi og sigraði keppnina með verskulduðum sigri. Sannkölluð happa-teygja hér á ferð!
826Nikólína Beck ÞorvaldsdóttirVar í bakstri í dag og bakaði tvær sortir(Hálfmána og ömmukökur)aðstoðaði kærastan við að affrysta frystiskápinn og þrífa þvottahúsið og endaði daginn á að fara til góðra vina með hluta af bakstrinum .(Gleymdi) skipti á rúmmunun:=)


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.