| Nr. framkvæmdar |
Nafn framkvæmdaraðila |
Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni |
| 534 | Margrét Halldórsdóttir | Tók þátt í að skipuleggja og halda konukvöld til styrktar frábæru málefni. Kláraði skýrslu sem hangið hefur yfir mér. |
| 555 | Margrét Geirsdóttir | Heimsótti uppáhaldsfrænku mína, hana Veigu. |
| 557 | Lára Thorarensen | Fór með hundinn í góðan göngutúr. |
| 676 | Guðrún Hermannsdóttir | Ákvað að standa einu sinni við stóru orðin og byrja snemma á jólabakstrinum, bakaði mömmukökur með stelpunum mínum, mömmu, systur minni og syni hennar. |
| 682 | Védís Geirsdóttir | Mætti kl. 6.30 í vinnu og kláraði nokkrar löngu tímabærar leiðréttingar og lagfæringar. Nóg eftir samt :) |
| 683 | Valtýr Gíslason | Hrósaði sjálfum mér fyrir að vera duglegur. |
| 684 | Kristín Ósk Jónasdóttir | Bauð samstarfsmönnum mínum heim í gærkvöldi og kenndi þeim að hekla vettlinga. |
| 685 | Katrín Pálsdóttir | Tók saman ljósmyndir frá því tvíburarnir mínir fæddust árið 2007 og til dagsins í dag og bjó til ljósmyndamöppu fyrir ömmurnar og afana. |
| 686 | Valtýr Gíslason | Vaknaði snemma svo ég gæti borðað meira trix í morgunmat |
| 687 | Hjördís Þráinsdóttir | Í dag hef ég látið afskaplega fáa fara í taugarnar á mér. |
| 694 | Kristín Þórisdóttir | Er að efna loforð við sjálfa mig og hugsa vel um heilsuna, fer í ræktina og sund |
| 709 | Hjörtur A. Sigurðsson | Stjórnaði Rekkafundi þar sem sýndar voru myndir af skútusiglingu til Jan Mayen og Grænlands. |
| 714 | Þorleifur Pálsson | Dreif í að halda samráðsfund með vinnufélögum, fund er ég hafði frestað vegna álags. Var eitthvað álag eða olli frestunin e.t.v. álaginu. Það er nú það. |
| 743 | Nína Dís Ólafsdóttir | Að vera hress, kát og dugleg :O) |
| 754 | Anna Guðrún Gylfadóttir | Bloggaði á mbl.is vegna "kick a Ginger Day" og benti á að það er líka "Hug að Ginger Day" í dag. Að því tilefni er ég búin að fá nokkur knús í dag og munu þau verða fleiri. Ég er fallega rauðhærð, stolt af því og mun berjast fram í rauðan.... fyrir réttindum rauðhærðra. |
| 757 | Anna Guðrún Gylfadóttir | Bjó loksins til, með börnunum, Mozartkúlurnar sem átti að gera um síðustu jól, úr marsipaninu, núggatinu og skúkkulaðinu sem keypt var fyrir rúmu ári. Betra seint en aldrei. Dásamlega góðar. |
| 762 | Gabríela Aðalbjörnsdóttir | Tók til í fataskápum og gaf kvennfélaginu Hvöt í Hnífsdal fullan poka af fötum sem þær munu selja fyrir lítinn pening á markaði sem þær ætla að vera með á laugardaginn. Ágóðinn mun renna til góðra málefna. |
| 765 | Anna Guðrún Gylfadóttir | Tók til í geymslunni til að gefa á "kolaport" og jólabasar Kvennfélagsins Hlífar í Hnífsdal. |
| 768 | Gísli Jón Hjaltason | Kláraði fjárhagsáætlun fyrir 2010. |
| 769 | Gísli Jón Hjaltason | Kláraði fjárhagsáætlun fyrir 2010. |
| 770 | Guðný Steingrímsdóttir | Ákvað að taka gleði mína á ný þótt mér hafi ekki tekist að læra að hekla vettlinga. |
| 772 | Sigurlína Jónasdóttir | Setti afmælisboðskortin fyrir fertugsafmælið mitt loksins í póst, ætlaði að gera það fyrir viku síðan :) |
| 773 | Sigurlína Jónasdóttir | Málaði piparkökur með dætrunum :) |
| 775 | Ingibjörg Kjartansdóttir | Tók til í fataskápum barnanna og gaf til Rauða Krossins. |
| 778 | Halldór Halldórsson | Ég gekk 4 km. í vinnuna. Gekk tvo hringi í kringum Stjórnsýsluhúsið (réttsælis). Fundaði vegna fjármála. |
| 788 | Margrét Halldórsdóttir | Ætla að enda góða vinnuviku á að selja merkitil styrktar Rebekku Maríu Jóhannesdóttur, 22 ára gamalli konu frá Hafnarfirði, sem berst nú fyrir forræði sjö ára og tæplega tveggja ára gamalla bræðra sinna eftir að móðir þeirra féll frá |