| Nr. framkvæmdar |
Nafn framkvæmdaraðila |
Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni |
| 457 | Ásdís Leifsdóttir | Lauk við fjárhagsáætlun næsta árs og er byrjuð á þriggja ára áætluninni. Sífellt erfiðara að finna leiðir til sparnaðar. |
| 459 | Ásdís Leifsdóttir | Kláraði skýrslu sveitarstjóra sem lögð verður fram á næsta fundi sveitarstjórnar. Lauk einnig við að skrifa upp á reikninga sem greiðast á næstu dögum. |
| 463 | Salbjörg Engilbertsdóttir | Í dag ætla ég að vinna í bókhaldi fyrir Strandabyggð og hefja reikningagerð á hafnargjöldum. Eftir vinnu fer ég með dóttur mína til læknis að láta líta á stóru tána á henni sem er eitthvað að plaga hana. Næst á dagskrá er að vinna excelverkefni vegna skrifstofunáms í M.K. Ég fer í fótsnyrtingu um 16.30 og síðan tekur við matseld og kirkjukórsæfing kl.20.30. |
| 472 | Ásdís Leifsdóttir | Búin að ljúka undirbúningi vegna fundar sveitarstjórnar og setja fundargögn í póst. |
| 610 | Salbjörg Engilbertsdóttir skrifstofumaður hjá sveitarfélaginu Strandabyggð | Vann í bókhaldi Strandabyggðar og eftir vinnu fór ég með dóttur mína til læknis, fór síðan í fótsnyrtingu á Puntstofuna og eftir kvöldmat mætti ég á kóræfingu hjá kirkjukór Hólmavíkur. Við æfðum fyrir messu á sunnudaginn og aðventukvöld sem verður í byrjun desember. Allir voru ánægðir með kórasamveruna sem við tókum þátt í í Reykholtskirkju um síðustu helgi og mikið rætt um þá ferð. Einnig var skipulögð ferð organista og sóknarnefndar til að skoða nýtt kirkjuorgel sem verið er að kaupa. |
| 862 | Kristján Sigurðsson | Skipulagði og undirbjó heimsókn norskra vina okkar hingað til Hólmavíkur frá vinabæ okkar Hole. En þau koma hingað á hverju ári með jólatré sem sett er upp við skólann. |
| 869 | Bjarni Ómar Haraldsson | Kláraði að ganga frá innheimtulistum fyrir nóvember mánuð. |
| 870 | Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | Las yfir öll skemmtilegu bréfin frá kennaranum mínum í bókmenntafræðinni.
Alltaf gaman að lesa góðan texta! |
| 888 | Ásdís Leifsdóttir | Búin að taka til á borðinu og ljúka bréfaskriftum vegna ýmissa mála. Lauk einnig við að lesa skýrslu vegna undirbúnings stofnunar framhaldsdeildar á Hólmavík. |
| 950 | Ester Sigfúsdóttir | Í dag er ég búin að skrá nýjar bækur á bókasafnið á Hólmavík, síðan ætla ég að baka og mála piparkökur með börnunum mínum |
| 951 | Ingibjörg Emilsdóttir | Ég tók 15 nemendur í 6 ára bekk í æfingu á atriði fyrir litlu jólin. Ætla svo að baka sörur eftir hádegi handa fjölskyldunni. |
| 952 | Gunnar Björn Melsted | Búinn að föndra jólakort handa og með nemendum mínum í 7. og 8. bekk í Grunnskólanum á Hólmavík. Næst á dagskrá er að athuga með jólagjöfina handa mér! Leyndó :) |
| 953 | Hildur Guðjónsdóttir | Ég undirbjó jólaleikrit með 6. bekk fyrir Litlu jólin í Grunnskólanum á Hólmavík. Föndraði nokkur jólakort til nemenda minna. Leysti ágreiningsmál milli nemenda, fundaði með þeim og spjallaði við þá um lífið og tilveruna sem varð til þess að allir fóru glaðir heim að skóladegi loknum. Þreif skólastofuna ofurvel með nemendum mínum í vikulok þar sem hún var farin að láta á sjá eftir mikla notkun glimmers, pappírs og föndurskæra. Leit í spegil og það stirndi á mig. Það er ljómandi gott :) Klukkan er að verða eitt og það er ennþá dimmt úti. Er að birta til eða er að dimma aftur? Missti ég af birtunni eða kom hún aldrei. Best að fara heim og knúsa karlinn og börnin mín. Gleðileg jól. |
| 959 | Arnar S. Jónsson | Vann í óteljandi hlutum í nokkra mánuði. Var svo upptekinn að ég afrekaði að týna blessaðri teygjunni, en fann hana svo í bókhaldsmöppu Sauðfjársetursins (sem ég stjórna) fyrir árið 2009 :) |