Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
395Guðmundur GuðlaugssonByrjaði dag Íslenskrar tungu á yfirlegu yfir gögnum vegna fjárhagsáætlunar 2010 en vinna við hana er í fullum gangi og tekur mikið af mínum tíma. Átti m.a. fundi með einstökum sviðsstjórum vegna sama verkefnis. Sat síðan í lok vinnudags ánægjulegan kvöldverðarfund ásamt hluta byggðarráðs Skagafjarðar með Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra.
400Herdís Á SæmundardóttirByrjaði daginn með smáfundi með mínum góðu konum á fræðsluskrifstofunni. Hef síðan setið við fjárhagsáætlunargerð fyrir fræðslusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Það verður gott að komast í leikfimi til Árna Stef á eftir
401Gunnar M. SandholtVann að fjárhagsáætlun 2010. Eins og að troða fæti nr. 41 í skó nr. 38. Reyndi að yrkja vísu mér til huggunar, gekk ekki. Hitti 3 félaga mína og söng með þeim fjórraddað. Kynnti hugmynd að gagnagrunni félagsþjónustu fyrir Braga. Ræddi við ellihruman bónda um fjárrag. Sendi skilaboð til fyrirlesara á málþingi félagsmálstjóra "Vordraumar og vetrarkvíði" Skrifaði vinkonu minni tölvupóst um hvað Ólafur kristniboði (afi Egils Helgasonar) var fallegur maður. Reyndi að koma viti fyrir unglinginn minn í síma, gekk skár en vísan. Lét Unnar fá teygjuna.
446Unnar Ingvarsson forstöðumaður Safnahúss SkagfirðingaVann það stórvirki að ljúka við yfirlestri og útprentun félagaskrár Sögufélags Skagfirðinga svo hægt sé að senda hópnum fréttabréf þar sem nýjustu bækur félagsins eru auglýstar
458Birgir R. RafnssonSkákmót á milli Skákfélags Sauðárkróks og kennara við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Þar sem Maddi mun sjá um að elda ofan í mannskapinn þá verður páfinn heiðursgestur og teflir fjöltefli við matargesti.
512Ásta Birna JónsdóttirPlanaði afmæli vinar míns og ætla að panta rollu handa honum í afmælisgjöf. Hann er svo fégráðugur.
564Björn Björnsson Ég þarf að vinna að útfærslu á svolitlu bútasaumsteppi, sem ég hef gengist undir að hanna fyrir Gunnar Rögnvaldsson staðarhaldara á Löngumýri. Það eru á kreiki dálítið óljósar hugmyndir um verkið en í vikunni verð ég að ná utan um það og koma á það einhverri mynd. Svo verð ég að undirbúa eitthvað sem mér er falið að segja skemmtilegt á jólahlaðborði sem nálgast óðfluga. Þá er meiningin að reyna í undirbúningi jólanna að verða örlítið skárri í allri umgengni á morgun, heldur en í dag.
609Bjarki Már ÁrnasonFór í að klára kofa sem er verið að byggja fyrir utan húsið.
711Fríða EyjólfsdóttirFrá því að Bjarki vinur minn afhenti mér þetta forláta armband í morgun hef ég lokið minni hefðbundnu fimmtudagskennslu auk þess að búa til bókmenntaverkefni fyrir 10. bekk og undirbúa kennslu morgundagsins. Einnig hef ég spilað "Tíu þúsund" við nokkra samstarfsmenn. Ég braut saman slatta af þvotti í hádeginu, tók inn þvott af snúrunni og hengdi aftur til þerris inni þar sem farið var að rigna, tók úr þvottavélinni og setti í hana aftur. Þetta leiddi til þess að ég hafði varla tíma til þeirrar athafnar sem hvað nauðsynlegust er um þetta leyti dags, sum sé að borða hádegismat. Ég kom því samt sem áður í verk að smyrja mér eina flatkökusneið með hangikjöti og það sem meira er, - að borða hana líka. Nú er ég á leið heim úr vinnu, ætla samt fyrst að setja nokkra glermuni í ofn og síðast en ekki síst, að koma teygjunni góðu til einhverrar athafnapersónu.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.