Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
176Páll BaldurssonFyrsta skrefið stigið varðandi frekari flokkun á sorpi í sveitarfélaginu. Ílát og ýmislegt fleira pantað. iacta alea est
188Jónas Bjarki BjörnssonGlerverksmiðjan Glervík sett formlega aftur í gang á nýjum stað í endurbættu húsnæði. Jónas Bjarki, oddviti Breiðdalshrepps og eigandi Glervíkur
204Jón ÞórðarsonHurð löguð á leiguíbúð, pantaði sorpkör fyrir sveitarstjórann, sótti gröfu inn í Norðurdal. Pantaði festingar á ljósastaura fyrir jólaljósin.
218Herborg ÞórðardóttirFærði hreppsskrifstofunni nokkur stofublóm manni sínum til heilla. Og væntanlega starfsfólki skrifstofunnar til ánægju.
221Helga S. ÞrastardóttirUnnið við afstemmingu fjárhagsbókhalds. Símsvörun. Skráði reikninga. Bókaði millifærslur. Tekið við blómagjöf Herborgar Bauð samstarfsfólki pizzu með kaffinu
232Unnur BjörgvinsdóttirEldaði dýrindis siginn fisk með tilheyrandi angan, eggjasúpa með ísjökum í eftirrétt handa eldri borgurunum mínum. Er að hella uppá kaffi.Verið velkomin,
235Þórunn BjörgBjó til og hélt fræðslufyrirlestur fyrir unglinga um munntóbak
433Friðrik ÁrnasonLét setja upp 6 stk varmadælur til að draga úr orkunotkun og umhverfismengun. Stefnan er að spara um 70 % af rafhitunarkostnaði. Betri nýting á hita og hreinna loft í leiðinni.
725Hrafnhildur Ýr HafsteinsdóttirÁkvað að hoppa út í djúpu laugina og skella mér í stóra uppskrift af marens. Heppnaðist vonum framar verð ég að segja :o) Bakaði svo aðeins meira og skúraði með jóla-innblæstri.
727Hrafnhildur Ýr HafsteinsdóttirEr hér með búin að leggja drög að og undirbúa 30 manna hlaðborð sem verður hjá okkur á laugardagskvöld.
777Ingibjög JónsdottirFór út að ganga í morgunn.Naut góða loftins hér á breiðdalsvík.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.