Athafnateygja Innovit
Nr. framkvæmdar Nafn framkvæmdaraðila Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni
19Eiríkur B. BjörgvinssonFundaði með forseta bæjarstjórnar, formanni bæjarráðs og þróunarstjóra vegna skipulags vikunnar.
28Óðinn Gunnar ÓðinssonFundaði í morgun með bæjarfulltrúum og bæjarstjóra um nokkur verkefni sveitarfélagsins. Vil vera búinn að koma sumum þeirra í höfn í vikunni.
452Pétur BjarnasonVísindagarðurinn ehf stendur fyrir "Vísindakaffi" og kynningu á stoðstofnunum á austurlandi föstudaginn 20. nóvember n.k. Undirbúningur stendur yfir núna og er langt kominn.
462Stefán Snædal BragasonÍ vinnunni er ég að undirbúa fund bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra. Þar verður fjárhagsáætlun 2010 tekin til fyrri umræðu og því von á miklum umræðum og vangaveltum bæjarfulltrúa um fjarhag og verkefni næsta árs. Heima fyrir er ég að vinna það þrekvirki að mála þvottahúsið í hólf og gólf og sér brátt fyrir endan á því verkefni. Þar á bæ hlökkum við til verkloka.
521Ingunn ÞráinsdóttirHvatti listamenn sem starfa í vinnustofum í Sláturhúsinu Menningarsetri á Egilsstöðum til að búa til lítil listaverk sem höfð verða til sölu í Sláturhúsinu á Egilsstöðum sumarið 2010, með því berst austfirsk myndlist og listhandverk enn víðar en það hefur gert hingað til.
522Helga GuðmundsdóttirLauk við að prjóna 4. "Portkvennapífuna" í gærkvöldi og held ótrauð áfram við að prjóna jólagjafirnar!
663Fridrik KjartanssonEr búinn að vera síðan í vor á námskeiði á vefnum að læra smíði vefsíðna. Ætla í dag að byrja nýtt námskeið sem ég keypi út í Bandaríkjunum sem kennir mér meira um netviðskipti og markaðurinn er öll jarðarkringlan. með kveðju Friðrik
692Stefanía Malen StefánsdóttirTæmdi "to do" listann minn í dag og er ánægð með daginn.
693Hreinn HalldórssonHafði loksins af í gær, eftir miklar pælingar, að staðfesta kaup á íþróttávörum fyrir Íþróttamiðstöðina. Í síðustu viku var laugargestum boðið upp á draugasögur í heita pottinum í tilefni af "Dögum myrkurs". Byrja svo á morgun á að taka svefnherbergið í gegn en það hefur staðið til í marga mánuði.
699Helga Þórarinsdóttir Náði því að skila rekstraráætlun í vinnunni í dag og ætla að afreka að baka smákökur í kvöld með fjölskyldunni
700Elísabet Ósk SigurðardóttirFara í staðlotu hjá H.Í. og læra heima það sem sett verður fyrir. Fara út með hundinn að ganga, elda góðan mat.
701Anna Sigríður KarlsdóttirEr búin að sitja 2-3 fundi í dag og er langt komin með að klára launavinnslu fyrir starfstöðina, búin að svara nokkrum tölvupóstum og minna á 2 fundi á mánudag og þriðjudag í næstu viku. Þarf að fara í bankann fyrir kl. 16 og svo ætla ég á vígslu inn í Hallormsstað kl. 17. Eftir það þarf ég að vinna verkefni í skólanum sem ég þarf að skila á mánudagskv. Ég hlakka til aðventunnar og jólanna ;)
702Guðbjörg GunnarsdóttirKom af stað ákv. ferli varðandi úthlutun íbúðar á vegum SAust, kláraði þrjá mikilvæga fundi í dag og skipulagði annan á morgun, ætla svo að drífa mig á foreldrafund í grunnskólanum í kvöld.
704Margrét HákonardóttirMæta á kóræfingu í kvöld eftir margra ára hvíld, klára að vinna minn hluta af árs og starfsáætlun. Klára að prjóna jólahúfu og vettlinga handa barnabörnum mínum.
705Soffía LárusdóttirVar að senda félags- og tryggingaráðuneytinu rekstraráætlun SAust fyrir árið 2010 sem ég var að ljúka við í samstarfi við sviðstjóra rekstrar- og fjármála. Í gærkvöldi lauk ég ásamt félögum mínum í bæjarstjórn fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2010. Eftir vinnu í dag ætla ég að vera við formlega opnun kyndistöðvar á Hallormsstað. Merkur atburður en kyndistöðin notar viðarkurl úr næsta nágrenni og er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Í kvöld ætla ég síðan að keyra til Akureyrar þar sem ég á mitt annað heimili og mun dvelja fram á sunnudag.
706Þorbjörg GarðarsdóttirBauð góðum vini á kaffihús og lét hann vita hvað hann væri æðislegur. Mun byrja jólaundirbúning með tuskuna á lofti til að geta svo verið afslöppuð og löt og notið í desember
726Sigurbjörg ÞórarinsdóttirFlýg til Reykjavíkur á morgun 20.11 að heimsækja nýfætt barnabarn.Kem heim um kvöldið.Vinn við breytingar í búðinni á laugardaginn.Og jólaskreytingar á sunnudaginn.
758Íris RandversdóttirKom frá Bonn þar sem ég var á frábærri vinnusjoppu um tengslaverkefni milli grunnskóla í Evrópu - á vegum Evrópusambandsins. Svona verkefni efla vináttu manna og þjóða á milli, stuðla að skilningi og friði. Dásamlegt!
806Stefanía J. ValdimarsdóttirSpilaði Olsen Olsen við Hilmar, manninn minn og Valdimar, yngri son minn.
818Erna JónsdóttirLærði að hekla,tók þátt í skíðamarkaði og bakaði köku ásamt knúsi og kossum á fjölskylduna
825Bajrni S. KristmundssonDagurinn í dag 21. nóv.fór í að gr. reikninga, skrá færslur í bókhald, undirbúa skil á VSK um næstu mánaðarmót og senda efni á heimasíðu Skógareg.is
866Dagrún HaraldsdóttirÆfa litla kór Hallormsstaðaskóla fyrir aðventukvöld 5. des. Þarf helst að gerast í hádegishléum. Er mjög skemmtilegt.


Athafnateymi Innovit mun á hverjum degi velja 10 skemmtileg og metnaðarfull dæmi um framkvæmdir Athafnateygjunnar.
Sigurður Óli Ólafsson Hélt erindi á lyfjaráðstefnu á vegum Financial Times í London um vaxandi samvinnu frumlyfja- og samheitalyfjafyrirtækja.
Skúli Skúlason Fundaði ásamt deildarstjóra hestafræðideildar Háskólans á Hólum með Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra(FNV) o.fl. um eflingu hestanáms FNV.
Jóhanna Pálsdóttir Skrifaði Fréttatilkynningu um Djammviku Íslenska dansflokksins - sem er fersk og tilraunakennd dansveisla haldin dagana 25-28 nóvember í Borgarleikhúsinu
Örn Þórðarson Færði tvær færslur á athafnateygjan.is Mátti eiginlega ekkert vera að því. En fannst ég verða að gera það. Er ekki frá því að teygjan hafi virkað athafnahvetjandi. Ætla að láta konuna hafa hana.
Gunnhildur Sveinsdóttir Sendi út beiðni á vini og ættingja að bað um þeirra aðstoð (sem sjálfboðaliðar) við jólaúthlutun á vegum Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fékk ýmsa ánægjulegan póst til baka, fólk búið að skrá sig og einn vildi fyrir hönd fyrirtækis síns leggja fram myndalegan fjárhagslegan stuðnin til starfs Rauða krossins. Frábært.
Lára Eyjólfsdóttir Knúsaði góðan vin og sagði að mér þætti vænt um hann.
Ásdís Ólafsdóttir Prjóna stóra lopapeysu, og faðma fjölskylduna mína:)
Elías Jónatansson Náði þvi að verða fimmtugur (16.nóv.) en æfði jafnframt fjögur sönglög fyrir tónlistarhátíðina Þorskinn 2009, sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi á laugardaginn 21. nóvember. Þar á bæjarstjórinn að syngja við undirleik fyrrverandi bæjarstjóra Ólafs Kristjánssonar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Kláraði að setja saman Íbúaþing sem haldið verður á laugardag í sveitarfélaginu. Allir frummælendur klárir sem og viðfangsefnin. Hlakka til að eiga frábæran dag með íbúunum mínum.
Hrefna hallgrímsdóttir Hrundi loksins af stað smíði óskabrunns fyrir þær Skoppu og Skrítlu. Þær hafa safnað lengi óskum barna um víða veröld og á föstudaginn 20 nóv. mun brunnurinn verða vígður í forsal Borgarleikhússins að viðstöddu fjölmenni því um 100 börn eru þessa vikuna að vinna með óskirnar sínar um hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. það verður falleg stund í leikhúsinu þegar ljósin verða kveikt í brunninum og óskirnar svífa út í himingeiminn :)
Þuríður Helga Kristjánsdóttir Er að ganga frá atriðum varðandi Suðræna tónlistarsprengju frá norðri, og að skipuleggja næstu heimstónlistar hátíð í Norræna húsinu fyrstu helgina í júlí 2010.