| Nr. framkvæmdar |
Nafn framkvæmdaraðila |
Hverju var komið í framkvæmd með athafnateygjunni |
| 4 | Hjalti Þór Vignisson | Lauk við að gera yfirlit yfir styrki sem atvinnu- og rannsóknasjóður Sveitarfélagsins Hornafjarðar styrkti á þessu ári. Sjóðurinn var stofnaður í upphafi árs 2009 til að efla atvinnu og byggð í sveitarfélaginu. Fjölmörg verkefni á sviði ferðaþjónustu, matvælavinnslu og skapandi greina fengu styrki. |
| 5 | Grétar Már Þorkelsson Ráðunautur, Hornafirði | Lauk við að skrá umsóknir um styrki til jarða og húsabóta hjá bændum í austur- og vestur Skaftafellssýslum. Verkefnið felur í sér að hvetja bændur til að endurrækta ræktarlönd og fá bændur til að finna lítt nýttum útihúsum ný verkefni. |
| 12 | Nína Síbyl Birgisdóttir | Undirbúningur Athafnaviku Hornfirðinga á fullu. Erum að koma fyrir hlutum í miðrými sem nota á í þessari viku. |
| 13 | Sandra Björg Stefánsdóttir | Undirbjó heimsókn NEED verkefnisins austur á Egilsstaði þar sem verkefnið verður kynnt fyrir framhaldsskólanemendum og aðstandendum þeirra. Sjá nánari upplýsingar um verkefnið á www.need.is |
| 17 | Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir | Í morgun hef ég aflað mér upplýsinga um skógrækt í sveitarfélaginu vegna vinnu við verndaráætlun fyrir suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. |
| 25 | Eyjólfur Guðmundsson | Ég hef í morgun verið að fara yfir skipulag vorannar í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Nemendur hafa lokið vali fyrir vorönn 2010 og næsta skref er að ákveða hvaða áfangar verða kenndir og hver kennir þá. |
| 89 | Rósa Björk Halldórsdóttir | Var á fundi vegna Fjallaverkefnis Ríki Vatnajökuls, á fundinum voru aðilar sem stefna á að stofna áhugafélag um fjalla og jöklaferðir hér í ríkinu. Það verkefni fellur vel inn í hugmyndafræði verkefnisins |
| 147 | Daníel Imsland | Var að klára hönnun og uppsetningu bókarinnar réttir úr ríki Vatnajökuls, fékk mér kaffi í leiðinni |
| 148 | Gunnar Reynisson | Vinna við gerð heimasíðu Icepel ásamt Danna. |
| 149 | Guðrún Ingólfsdóttir | er að mála í Nýheimum allir velkomnir |
| 160 | Guðrún Ingólfsd | Vinn að undirbúning fyrir uppgjör 2009, og heimsókn endurskoðenda þann 23.11. n.k. Afrek síðustu mínútna var að stofna/og flokka skjöl og möppur í excel.
|
| 165 | Sigríður Margrét Magnúsd. | Var að ljúka við að klára uppgjör, og gat þá tekið voða vel til á skrifborðinu
og það er allt orðið voða fínt fyrir næsta verkefni. |
| 222 | Sverrir Aðalsteinsson | er að smíða útidyrahurðarkarm og tvöfalda hurð í hann, Svo afrekaði ég það að fara til augnlæknis en hann hef ég ekki hitt í 10 ár þarf örlítið sterkari lesgleraugu eða sem nemur 0,5 |
| 298 | Sigþrúður Rögnvalds | Sendi uppgjör til Síldveiðiskipa, og fór síðan á námskeið hjá matís. |
| 303 | Elín S. Harðardóttir Gæðastjóri Skinney-Þinganes | Tók einn rúnt um húsið og fór yfir gler/plast eftirlitið. Skoðaði þrifin á uppsjávarlínunni og kom við á snyrtilínunni til að skoða ufsann. |
| 307 | Elín S. Harðardóttir Gæðastjóri Skinney-Þinganes | Tók einn rúnt um húsið og fór yfir gler/plast eftirlitið. Skoðaði þrifin á uppsjávarlínunni og kom við á snyrtilínunni til að skoða ufsann. |
| 312 | Kristín Ármannsdóttir | Er búin að senda 19 manns í Kíró í dag. |
| 441 | Sporthöllin | Kláraði að undirbúa gleðivikuna hjá okkur í tengslum við athafnavikuna.
Skipulagði svo fjölskyldudaginn sem við ætlum að vera með á laugardaginn. |
| 465 | Berglind Steinþórsdóttir | Var að undirbúa verkefni sem er verið að vinna í athafnavikunni í Grunnskóla Hornafjarðar. Markmiðið með því er að krakkarnir setji upp vandamálabanka þar sem er hægt að finna lausn við ýmsum daglegum vandamálum. |
| 482 | Eiríkur Hansson | Skipulagði nýsköpunardaga í eldri hluta Grunnskóla Hornafjarðar og nú eru rúmlega 130 krakkar og tæplega 20 fullorðnir að vinna á fullu í verkefnunum. Allir sælir og glaðir. |
| 497 | Eyrún Unnur Guðmundsdóttir | Aðstoðaði hóp af nemendum í 9. og 10. bekk í nýsköpunarvinnu í skólanum. Verkefnið gekk út á að taka í sundur einhvern hlut, t.d. síma, vekjaraklukku, vöfflujárn og afla sér síðan upplýsingar á netinu um hlutinn, þ.e. hver fann hann upp, hvenæar hann var fundinn upp og í hvaða tilgangi hluturinn var fundinn upp. Síðan var leitað af myndum af hlutnum í ýmsum útfærslum og þær prentaðar út. Þá var skrifuð upp tímalína á karton og myndirnar límdar þar á. Kom mjög vel út og þetta var mjög skemmtilegt verkefni. |
| 500 | Hulda Hauksdóttir | Farið í matartíma og náð í ónýt heimilis- og rafmagnstæki til að nýta í rannsóknavinnu í Heppuskóla. |
| 548 | Björn Sigfinnsson | Vann að skipulagningu nýsköpunardags í Heppuskóla og framkvæmdi með mínum hóp. Frábærir dagar, mikið fjör. |
| 558 | Þórgunnur Torfadóttir | Tók að mér að kynna Uppeldi til ábyrgðar fyrir hóp í Fjarðarbyggð á föstudaginn í þeirri von að fleiri kynnist hugmyndafræðinni og "sjái ljósið" - |
| 561 | Birgir F. Reynisson | Tók þátt í smíði og uppsetningu á æfinga- og upptökuhúsnæðisins Raufinni. |
| 589 | Ragna Pétursdóttir | Keypti 2 jólagjafir. Og heimsótti frænku mína sem er að jafna sig eftir aðgerð. |
| 592 | Helga Vilborg Sigjónsdóttir | Gerði klárt undir málningu í einu herberginu hjá mér ( sparsla og pússa).
Hafði samband við Tengla í 5 bekk varðandi skipulagningu á jólasamveru nemenda og foreldra. Spilaði svo nokkur lög á gítarinn minn og sönglaði með, bara svona fyrir sjálfa mig :) |
| 597 | Ragnheiður Sigjónsdóttir | Hlustaði á strákinn minn lesa og knúsaði hann svo fyrir svefninn. Yfirfór lagalistann fyrir jólagiggið og skrifaði minnislista fyrir bústaðarferðina. Undirbjó svo smá verkefni fyrir vinnuna á morgun. |
| 614 | Arna Ósk Harðardóttir | Bakaði smákökur handa syninym í Reykjavíkinni og pakkaði svo niður í tösku til að geta skotist til hans með þær á morgun. |
| 615 | Guðný Helga Örvar | Ég er að ljúka við síðustu jólagjöfina fyrir börnin mín, sennilega hefst þetta fyrir helgi |
| 616 | Sigríður Lucia Þórarinsdóttir | Ég ætla að klára að ganga frá bútasaumsdótinu mínu. |
| 617 | Hafey Lind Einarsdóttir | klára jólaþrifin,gera jólagjafir og vera með fjölskyldunni |
| 619 | Guðný Svavarsdóttir | Er að fara að fitja upp á peysu á tengdadóttur og svo á að gefa bóndanum stórt knús |
| 660 | Halldóra Jónsdóttir | Ég tók æfingu í Sporthöllinni með nafna mínum en hingað til hef ég bara horft á hann puða. Svo fyllti ég út umsókn um þjónustu táknmálstúlks fyrir næstu önn í FAS. |
| 667 | Sigurður Páll. Tónlistarmaður | Samdi og útsetti lag, fyrir Abelton Production. |
| 668 | Sigursteinn Haukur Reynisson | Hjálpa nemenda í eðlisfræði við skýrslugerð. Undirbý tíma í tölfræði og eðlisfræði. |
| 741 | Þuríður Björg Þorgrímsdóttir | Fór á námskeið um kennslu fullorðinna á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. |
| 799 | Ásgrímur Ingólfsson | Náði hluta af vinnufund í bæjarstjórn, og kom skipinu á sjó til að færa björg í bú |